Aðalvalmynd

Auglýsing

Blogg og hellingur af nýjum myndum! :)

22. febrúar 2008 klukkan 23:17

Æj ég veit ekki...fannst bara vera kominn tími til að blogga! :)

Það er náttúrulega ekki að spyrja að því að það hefur margt gerst síðan síðast...enda nokkrir mánuðirnir síðan. Ég ætla nú ekkert að fara að þreyta ykkur (takið eftir því að ég geri virkilega ráð fyrir að einhver kíki ennþá hingað) með því að rifja þetta allt saman upp, en til að þetta verði ekki alveg yfirþyrmandi ætla ég að punkta smá...allavega til að byrja með
...ég er hrædd um að þetta verði staðreyndablogg þannig að ég smelli nokkrum myndum inn á milli til að deyja ekki úr leiðindum. Kannaski best að byrja á einni af okkur, ef þið skilduð vera búin að gleyma! ;)

ein af okkur

 

Sumarið var náttúrulega frábært í alla staði. Helst stendur uppúr Tyrklandsferðin með stelpunum mínum sem var alveg yndisleg. Við lágum á vindsængum í sundlauginni allann tímann á milli þess sem við sötruðum kokteila og kíktum á djammið einu sinni eða tvisvar!

Mæsa búin að koma sér í stellingar í lauginni :)

Þegar heim til Íslands var komið fór ég beint á KEA og Ólinn í veiðina. Svo var það bara vinnan og sundferðir með Dúnnu minni og krílunum. Í lok sumars vorum við svo með fjölskyldunni minni á Spáni í viku og enduðum í nokkurra daga heimsókn hjá Sif og Hlyni í Madrid, rosalega skemmtilegt allt saman.

litlu krílin í sumarveðrinu á akureyri

Við komuna hingað tók svo bara skólinn við og hin venjulega rútína hérna. Lærdómur, partý, matarboð og skemtilegheit. Óvenju mikill gestagangur á haustdögum byrjaði á því að hann Eggert okkar kom í heimókn frá Belgíu þar sem hann var í skiptinámi og var hérna í nokkra góða daga í stanslausu partýi. Nokkrum vikum seinna kom svo Íris í heimsókn...þeir dagar eru gjarnan kallaðir verslunardagarnir miklu, enda lítið annað gert en að versla og drekka mojito! :)


Áður en maður vissi af voru svo bara jólin komin og við mætt á klakann! Alltaf jafn gott að koma heim í jólastemminguna og hitta alla aftur.

Janúar hvarf...aldrei hefur neinn mánuður hlaupið svona frá mér. Það voru annalok og verkefnaskil hjá mér í lok janúar, þannig að hann fór allur í lærdóm og gekk bara vel.

Febrúar byrjaði með því að Anna mín og Gyðan komu í heimsókn! Það var alveg frááábært að fá þær og við gerðum allt! Það var farið út að borða, verslað, drukkið, bakaðar bollur á bolludaginn, kelað í svefnsófanum og fleira og fleira. Frábærlega skemmtileg heimsókn.

Gyðan mín og Anna við stelpurnar að leika túrista :)

Síðan í byrjun febrúar er ég svo búin að vera í stafsnámi. Er að vinna hérna á arkitektastúdíói sem einn af prófessorunum mínum rekur. Sossum ekki mikið um það að segja...bara alveg ágætt. En á meðan er Óli búinn að vera á fullu í skólanum, alltaf nóg að gera þar.

Svo fórum við í brettaferð helgina 9.-10. feb. með Sverri, Sigurrósu og Heklu, stelpunni þeirra og Niklas, Svía sem er með mér í bekk. Keyrðum til Madesimo, sem er hérna í tveggja tíma fjarlægð, á laugardagsmorgni og gistum á litlu hóteli í eina nótt. Það var alveg frábært veður allann tímann og ótrúlega skemmtilegt. Ég er reyndar ekkert að verða betri á brettinu, en það er alltaf gaman að komast aðeins uppí fjöllin í góðu veðri með skemmtilegu fólki! :)

Niklas og Óli í bjórpásu ...verið að gera sig klár fyrir brekkurnar

Það hefur nú eitthvað gerst síðan þá, en ég er að hugsa um að hafa þetta ekki lengra í bili...ég á ekki einu sinni eftir að nenna að lesa þetta sjálf! Ætla að reyna að fara að vera duglegri að skrifa hérna inn og setja inn myndir og svona, þannig að ekki gefast alveg upp á okkur!

Ég er búin að setja inn fuuullt af nýjum myndum sem þið getið skoðað hérna til hliðar. Það eru myndir úr Tyrklandsferðinni , Heimsókn Önnu og Gyðu og Brettaferðinni til Madesimo .

Góðar stundir :)

ferðalög og skemmtilegheit

03. júní 2007 klukkan 16:33

Heihó!

Alveg heill hellingur búinn að gerast síðan síðast! Þar ber náttúrulega hæst að nefna að mamma og pabbi komi í heimsókn til okkar og voru í heila 9 frábæra daga!! Þau komu laugardaginn 19. maí og þá vorum við skötuhjúin búin að leigja bíl og sóttum þau á flugvöllinn þaðan sem við fórum beint upp að Gardavatninu. Við byrjuðum á að skoða bæinn Desenzano í þvílíkri sól og blíðu og fórum þaðan til Sirmione þar sem við áttum pantaðan bungalow á tjaldstæðinu. Þetta var sko ekkert smá flott tjaldstæði á ströndinni með þvílíkt flottri sunglaug og ég veit ekki hvað og hvað! Eftir smá blund við sundlaugina og göngutúr á ströndinni sýndum við Óli ótrúlega grilltakta og töfruðum fram dýrindismáltíð á pallinum við kofann. :)

http://myndir.ekkert.is/d/460963-1/DSC_0040_resize.JPG http://myndir.ekkert.is/d/460987-1/DSC_0090_resize.JPG

Daginn eftir skoðuðum við svo gamla bæinn í Sirmione og höfðum það notalegt eftir all svakalegann göngutúr með fram held ég bara nánast allri strandlengju Gardavatnsins!
:) Um miðjan dag héldum við svo heim til Mílanó þar sem tóku við 5 dagar í þvíílíkum hita að ég haf bara aldrei vitað annað eins. Það er ekki loftkæling í íbúðinni og hitinn var að fara hátt í 40 gráðurnar og yfir 30 gráður hérna inni!! Úff...það var sko ekki að furða að maður væri frekar slappur hérna á tímabili! Pabbi greyið var alveg að niðurlotum kominn hérna og endaði á að hann fór út í búð og keypti portable air conditioner! :) heheh... það kom sér rosalega vel, en þessi vika sem þau voru hérna í borginni var bara laang heitasta vikan hérna í sumar...en svo er bara búið að vera rigning og leiðindi síðan þau fóru! En þau náðu að skoða það helsta sem borgin hefur uppá að bjóða auk þess sem eitthvað var verslað...aðallega á ömmubörnin og börnin (mig) ;)

En seinni helgina sem mamma og pabbi voru hérna leigðum við aftur bíl og fórum til Toscana. Við áttum pantaða gistingu á einhverju sveitasetri rétt fyrir utan Flórens. Óli sýndi ótrúlega hæfileika með því að finna húsið í fyrstu tilraun þar sem vegurinn upp af því var nánast ófær og ótrúlega vel falinn! Þegar við mættum svöng og þreytt, töfraði húsfreyjan fram þennan líka svakalega góða pastarétt og rauðvín sem reyndist besta máltíðin í ferðalaginu (þó svo að nautasteikin með súkkulaðisósunni sem Óli og pabbi fengu eftir einungis klukkutíma bið á einhverju veitingahúsinu hafi víst reynst hreint ágæt.) Þetta var mjög fallegt gamalt hús og ásamt okkur voru þarna hress hjón frá Hollandi. Húsbóndinn var líka hress þó svo að við Óli hefðum varla skilið orð í ítölskunni hans. Á laugardeginum kíktum við til Flórens þar sem allt það helsta var skoðað í sól og hita. Sem betur fer var rigning á leiðinni heim og ég er ekki frá því að fólk hafi bara verið sátt þegar það var líka rigning á mánudaginn þegar mamma og pabbi yfirgáfu Mílanó eftir ótrúlega skemmtilega daga! Ég vona bara að þau komi aftur í heimsókn sem fyrst!
:) rosalega gaman að hafa þau!

http://myndir.ekkert.is/d/461049-1/DSC_0239_resize.JPG http://myndir.ekkert.is/d/460995-1/DSC_0148_resize.JPG


En þetta er nú að verða ansi langt og leiðinlegt blogg, þannig að ég ætla bara að fara að skella inn myndum af ferðalögunum hérna til hliðar...endilega kíkja á þær! ;)  Nýju myndirnar eru undir Bungalow við Garda, Toscana og Mílanó 19.-28. maí

Bless í bili...

...

11. maí 2007 klukkan 23:56

Kvöldið í gær og dagurinn í dag er bara með því fáránlegra sem ég hef upplifað! Það þarf náttúrulega ekki að fara mörgum orðum um júró, sem er alltaf jafn skemmtilega leiðinleg en sossum ágætis afsökun fyrir smá djammi. Við vorum með smá pulsupartý hérna heima sem náttúrulega endaði bara í einhverri vitleysu...reyndum að stela indverskum blómasala, og klippa Danna en enduðum á að stela einhverjum svertingja í innkaupakörfu..hann var bara mjög sáttur með það.

Í morgun mætti ég svo hress sem ljónið á lestarstöðina þar sem ég var að fara með skólanum eitthvað út úr bænum að skoða eitthvert innréttingarfyrirtæki (eins og þið heyrið þá var ég búin að viða að mér gríðarlegu magni upplýsinga áður en við lögðum af stað). Eftir klukkutíma lestarferð og hálftíma rútuferð kom í ljós að þetta var sko ekki innréttingafyrirtæki sem átti að fara að skoða, heldur tók við tveggja og háfs klukkutíma kynningarferð um verksmiðju sem framleiðir krana og blöndunartæki!!!! Ég var náttúrulega gersamlega ósofin, en eftir tvo tvöfalda espresso þá var þetta bara með því fyndnara sem ég hef lent í...ég meina hver hefur áhuga á að kynnast því hvernig kranar eru búnir til!? Sökum áhuga- og heyrnaleysis (það heyrðist ekki orði í kallinum fyrir vélagnýnum) var ég allann tímann að horfa á greyið fólkið sem eru allann daginn alla daga að búa til skrúfgang í eina sérstaka týpu af einu sérstöku blöndunartæki....

Stay in school :)

Útilega á ströndinni

07. maí 2007 klukkan 07:14

Hæ aftur! :)

Um síðustu helgi fórum við með Hjördísi & Loga og Danna & Dóru í útilegu til Sistiana sem er rétt hjá Trieste við landamærin að Slóveníu. Við fjárfestum hérna í svaka flottu tjaldi sem tjaldar sér sjálft...maður bara kastar því uppí loftið og púff... komið tjald! ;) í sömu ferð keyptum við líka badmintonsett með neti og öllu af því að óli er búinn að vera að halda því fram að hann gæti unnið mig í badmintoni (sem er náttúrulega mesti misskilningur, eins og sannaðist í lok ferðar!) við keyptum líka eitt skúba dæv sett af því að við vorum nú að fara á ströndina og þetta var líka svo hræ billegt! ;)

En á föstudaginn leigðum við sem sagt 2 bíla og héldum af stað. Þetta er reyndar ein af stærri ferðahelgum ársins hérna á Ítalíu þannig að ferðalagið tók aðeins lengri tíma en við höfðum reiknað með, en um kvöldið vorum við allavega mætt á tjaldstæðið í Sistiana. Tjaldstæðin hérna á Ítalíu eru víst þannig gerð að það er ekkert gras að tjalda á heldur er bara möl yfir öllu tjaldstæðinu...en litlu einangrunardýnurnar okkar voru nú alveg að tækla það og það fór bara rosalega vel um okkur. Þegar búið var að láta tjöldin tjalda sér var svo skellt í grillveislu með kertaljósum og hlandvolgum bjór undir berum himni.

 

http://myndir.ekkert.is/d/451669-2/DSC_0071_resize.JPG

Morguninn eftir var haldið á ströndina, en hún var bara í nokkurra mínútna fjarlægð frá tjaldstæðinu og úti var sól og blíða. Þar tóku Óli og Logi að smyrja á sig gulrótarolíunni, enda voru þeir farnir að glóa all hressilega uppúr hádegi. Deginum var svo bara eytt á ströndinni í skúba dævi, sundferðum, nestisáti og drykkju...ekki slæmt það í lok apríl! Þegar við mættum aftur á tjaldstæðið var svo tekið aðeins á badmintonspöðunum, sem var ansi hressandi eftir margra ára fjarveru mína frá keppni! ;p Svo var bara kveikt á kertunum og grillið kyndað og byrjað að detta í það! ;) Sannkölluð útilegustemming!

http://myndir.ekkert.is/d/451675-2/DSC_0082_resize.JPG

 

Á sunnudagsmorguninn pökkuðum við svo dótinu okkar saman og héldum aftur á ströndina, þó svo að á þessum tímapunkti hafi Óli verið farinn að líkjast rauðum yfirstrikunarpenna!! Það leifðum við Danna litla aðeins að busla með nýja gúmmíbátinn sinn á meðan við sóluðum okkur. Uppúr miðjum degi keyrðum við svo til Trieste og skoðuðum okkur aðeins um og kepptum í tröppuþreki og héldum svo þaðan til Portorose í Slóveníu. Þar eyddum við kvöldinu, fórum út að borða og vorum rómantísk. Þetta er alveg æðislega fallegur lítill strandbær og við hefðum sko verið meira en til í að vera þar í fleiri vikur, en það var kominn tími á að koma sér heim í lærdóminn. Við keyrðum sem sagt heim sunnudagsnóttina og vöknuðum spræk beint í lærdóminn á mánudeginum! ;)

Ég er búin að setja inn fleiri myndir úr ferðinni hér til hliðar undir Útilega í Sistiana..ótrúlega dugleg þó ég segi sjálf frá!


Svo erum við bara að reyna að læra sem mest núna að því að mamma og pabbi eru að koma í heimsókn eftir 2 vikur og þá ætlum við nú að reyna að vera góðir gestgjafar og ekki alltaf lúrandi yfir bókunum eins og við erum venjulega! ;p

Hafiði það gott.

Sól og sumar

26. apríl 2007 klukkan 09:38

Jahérnahér...þá er það spurningin um hvar maður á að byrja, því það er náttúrulega óendanlega mikið búið að gerast síðan síðast :)

Til að byrja svona næstum því á byrjuninni, þá fórum við í aðra skíðaferð 15.-17. mars. Í það skiptið fórum við til Val Thorens þar sem mamma og pabbi óla og vinir þeirra voru að skíða í nokkra daga. Það var alveg ótrúlega skemmtileg ferð með þvílíkt góðu veðri allann tíma...og ekki spillti félagsskapurinn. Ekkert smá gott að hitta fjöskylduna aðeins
:) Óli minn fer nú vonandi í það hvað úr hverju að skella inn myndum af þessu, því þær segja jú meira en þúsund orð!

Í páskafríinu komu svo Benni og Laufey í heimsókn til okkar og það var ekkert smá gaman að hafa þau...og ekki spillti fyrir að þau komu færandi hendi með páskaegg frá Nóa kallinum (ég stútaði mínu á 2 dögum, en óli er ennþá eitthvað að vinna í sínu), lax, lakkrís, ópal og ég veit ekki hvað og hvað! Ótrúlega góðir gestir alveg! :) Við vorum nú bara með þeim í rólegheitum hérna í bænum...þá byrjaði þetta rosalega góða veður hérna sem er búið að vera síðan, bara fer ekki niður fyrir 30 gráðurnar. Þannig að við vorum bara að spóka okkur í bænum og sóla okkur í garðinum og borða góðan mat og svona. Sólrún stóð meira að segja fyrir páskasteik fyrir okkur krakkana sem vorum hérna yfir páskana á laugardaginn, þannig að manni fannst maður ekki vera að missa af neinu bara!

Svo var hérna Salone del Mobile, alþjóðleg hönnunarsýning 18.-23. apríl og þá voru sýningar og læti hérna í öllum galleríum og stúdíóum út um alla borg, alveg æðislega gaman! Rosalega margt skemmtilegt og flott að sjá. Rúna, vinkona okkar, kom á sýninguna alla leið frá Hollandi þar sem hún er í hönnunarnámi og gisti hérna hjá okkur á sófanum góða í eina nótt. Rosalega gaman að sjá hana og hún kom sko með nóg af gjöfum eins og henni einni er lagið! ;)

Ótrúlega mikið að gerast í sófanum þennan mánuðinn þar sem Einar Jón og Hlín, konan hans, komu hérna og voru hjá okkur í eina nótt...lentu reyndar í smá veseni þar sem tölvutöskunni þeirra var stolið en það er nú allt búið að hljóta farsælan enda núna.

Þess á milli eru svo náttúrulega búin að vera nokkur partýin...en þau eru nú sossum öll keimlík! ;) Annar erum við bara að reyna að vera dugleg í ræktinni og skólanum og svona, það fer nú að styttast í annan endann á þessu og maður verður að vera flottur fyrir Turkey! :) En ég er sem sagt að fara með bestustubestu stelpunum mínum til Tyrklands í eina viku frá 22. júní! Hlakka ekkert smá til!! :):)

Ótrúlega leiðinlegt upptalningarblogg hérna á ferðinni, en nú fer maður að spíta í lófana og blogga oftar og þá verður þetta vonandi eitthvað skemmtilegra!
ég reyni svo að fá óla til að fara að setja inn myndir af þessu öllu saman og svona!

Þangað til næst...


vor í mílan

11. mars 2007 klukkan 14:55
ég ætla ekki eini sinni að reyna að afsaka hvað ég er yfirburðar latur bloggari (þó ekki latari en óli) :)

Það er ekki hægt að segja annað en að vorið sé komið í mílanó þar sem það er búið að vera sól og blíða núna alveg í margar vikur og bara alveg hreint æðislegt. En sökum (ekki) fyrrnefndrar leti verður þetta blogg í punktaformi!

Chamonix ferðin var náttúrulega í einu orði sagt alveg frábær. Veðrið og færðin eins og best var á kosið og félagsskapurinn ekki verri! Óli tók brettakennsluna föstum tökum og tóks loksins að kenna mér að beigja í báðar áttir, sem verður að teljast mjög góður árangur. Annars mæli ég bara með að allir skoði myndirnar sem óli afrekaði að setja hérna inn og lýsa helginni mjög vel.

Daginn áður en við fórum til france þá var ég að skila öllu af mér í skólanum. Það gekk nú bara alveg bærilega en þar sem ég er fyrst í stafrófinu í bekknum mínum var ég náttúrulega fyrst upp og vissi ekkert hvað ég átti að vera að gera þannig að þetta var svona frekar vandræðalegt allt saman til að byrja með. sérstaklega þar sem kellíngarbeljan sem rekur skólann byrjaði á því að skipa mér að henda tyggjóinu mínu...og þar með var ég komin í ónáð hjá henni sem ég er enn að reyna að vinna mig úr! Þetta var semt ekki jafn vandræðalegt og vikuna áður þegar við fórum í sögupróf sem ég hélt að ég hefði valið að taka skriflega en það kom svo í ljós að það hafði verið kosning og allir ættu að taka prófið munnlega. Ég var náttúrulega fyrst upp og vissi ekkert hvað var að gerast þegar kennarinn bara byrjaði að spyrja mig alls konar spurning yfir allann bekkinn....vissi varla fyrr en þetta var búið að ég hefði verið í prófi! hressandi! :) En ég náði allvega öllu þannig að ég er bara mjög sátt...brilleraði meira að segja í sögunni! ;)

Svo erum við búin að fara í tvær afmælisveislur síðan síðast. Sverrir sem er á 2. ári í skólanum mínum og Sigurrós hans héldu upp á þrítugsafmælin sín föstudaginn 23. feb. Það var svaka stuð og æðislega gott sushi og kökur í boði. Í gær hélt Írisin okkar svo upp á afmælið sitt, en hún átti afmæli á ítalska konudaginn þann 8. mars. Það vara aperativo með rosalegum kræsingum og alveg hreint svakalega gaman bara. Tókum líka smá tjútt hérna með bekknum hans óla um daginn, þau eru náttúrulega allraf jafn hress og meira að segja búinn að bætast einn ítalskur hommi í hópinn. Hann er mjög fyndinn og skrapp einmitt af barnum af því að hann þurfti að fara heim að kúka :) og tók myndræna lýsingu á því hvernig notkun bidets (skolskálar) fer fram.

Út af því hvað það er búið að vera æðislegt veður erum við líka búin að vera mikið á röltinu um borgina. Tókum second hand búða leiðangur með danna hérna um alla borg og erum mikið búin að vera á röltinu í kringum bæinn. Þessar veðurlýsingar eru hint til ykkar allra um að fara nú að koma að heimsækja okkur!! :)
Við fórum í klippingu hérna bæði um daginn. Í tilefni af veðrinu góða :) ákvað ég að skella mér í ljósar strýpur. Stákurinn sem setti í mig srýpurnar var ekki nema einn og hálfan tíma að því vegna þess að hann notaði matarplast í hárið á mér í staðinn fyrir álpappír! Hann var alveg að flækjast í þessu í lengri tíma greyið...enda ekki þægilegast efnið að eiga við. Hann má nú samt eiga það að þetta kom ágætlega út hjá honum. Óli er líka svaka sætur eftir sína klippingu! :)

Segi þetta gott í bili...ætla að fara að reyna að læra eitthvað. Enda þetta hérna á einni mynd af Maríu Kartínu og Elvari Ágúst, bara af því að þau eru svo falleg og flott og miklir grallaraspóar! ;)
Hafiði það gott.

http://www.barnaland.is/album/img//51575/20070310223635_12.jpg

Myndir

27. febrúar 2007 klukkan 12:42
Sælt veri fólkið...
Ég skellti inn myndum frá brettaferðinni til Chamonix.

Læt svo Ester koma með færslu um þetta allt saman á morgun því hún er í fríi og hefur þar af leiðandi ekkert betra að gera ;) hehe

slóðin er:

www.flickr.com/photos/ojensson

Eini gallinn við þetta er sá að þetta drasl forrit raðar myndunum í öfugri röð... þvílíkir bjánar.
Þannig að þið byrjið á síðu 4 svo 3 o.s.fr.

Verði ykkur að því.

af jólum og janúar

29. janúar 2007 klukkan 20:39

Jahahérna...

Byrjum þetta á jólahlaðborðinu sem við fórum á með starfsmönnum og fastakúnnum úr ræktinni. Við fórum sem sagt með markúsi og danna og mættum eldhress fyrir utan ræktina þar sem okkur var þröngvað uppá einhvern gaur sem talaði ekki stakt orð í ensku þannig að rúmlega hálftíma leiðinn í krumasuðið þar sem hlaðborðið var var frekar vandræðaleg. Hlaðborði var sem sagt haldið á einhverjum subbulegum bar og maturinn var bara alveg hreint hrikalegur! Það voru einir 5 forréttir, álíka margir aðalréttir og hjónabandssæla í eftirmat...þetta var hvert öðru ógeðslegra og varð bara ekki komið niður nema með svakalegu magni af raupvíni eða bjór...sem mér grunar að sé ástæðan fyrir því hvað strákarnir voru orðnir sleipir í ítölskunni á heimleiðinni.

 

Hress í aftursætinu...vissum ekki hvað beið okkar!

Danni og hressa afgreiðslustelpan (mozzarella gellan) ;)

 

Óli og Oscar (Fabio) besti vinur minn í ræktinni

Og svo komu loks jólin. Við vorum á Íslandi frá 20. des til 6. jan og það var alveg hreint æðislegt. Ég var reyndar aðeins veðurteppt í borginni, en annars var ég bara á Akureyrinni góðu með öllum frábæru stelpunum mínum, mömmu, pabba og stórfjölskyldunni...en mestum tíma eyddi ég með dúnnu, andra og krílunum. Það var mikið djammað með gellunum og ég reyndi að hitta alla sem oftast....skilst að jólin hafi líka verið ágæt hjá óla...

 

Anna, Mæsa, ég og Gyða

Hrefna, Helga Magga og Sólrún

Magga, Sísí og ég á klóinu :)

Það var nú samt líka bara gott að koma heim aftur, af því að við vorum nú nánst ekkert saman í jólafríinu. Síðan þá er bara búið að vera brjálað að gera í skólanum...styttist í annalok hjá mér með tilheyrandi skilum og prófum og óli er náttúrulega alltaf í einhverju þannig. Gaman að segja frá því að þegar við fórum í ræktina í fyrsta skiptið eftir jólin þá spurði skemmtilega vinkona okkar í afgreiðslunni mig hvort það væri ekki allt í lagi...ég væri eitthvað svo föl...fannst óli og markús bara vera alveg svartir miðað við mig og bætti svo við að ég væri bara hreinlega alveg eins og mozzarella á litinn!! Gott að vita hvað maður lítur vel út eftir jólahvíldina. Það verður nú reyndar að fylgja sögunni að brúnkukremið mitt var tekið af mér í Keflavík af því að það var of mikið magn í túbunni...ég er enn að naga mig í föl handabökin.


Matarklúbburinn Matarást ;) er búinn að vera með virkasta móti árið 2007 og byrjaði það á því að íris bauð í fierce kjúklingarétt sem endaði með mohito yfir uppistandi hjá danna. Í tilefni af því að við getum horft á hm í gegnum tölvuna okkar, buðum við svo írisi og amöndu í mat á laugardaginn. Það var bara leikurinn og sönkeppnin (jesús minn hvað það eru léleg lög í þessu drasli) og spaugstofan (já við erum bara komin á þennan aldur) og svo kom sólrún (sæt þrátt fyrir háan aldur ;) með trivial og það var spilað og drukkið langt fram eftir nóttu.

Á næstunni er það svo bara sjúbb sjúbb sjúbb á bretti í charmonix í frakklandi með Loga, Hjördísi, Íris og Amöndu og öllum sem vilja koma með. Við förum þegar önnin er búin hjá mér eða 16. febrúar og það er ekki hægt að segja annað en að það sé spenningur í manni. Ég ætla að ljúka þessu bloggi með myndum frá Charmonix - þangað til næst...

 

 

 

Desember

10. desember 2006 klukkan 19:02

Jæja, þá er bara kominn desember og bara 10 dagar þangað til við komum heim! :) maður er nú orðinn pínu spenntur! Annars er nú ýmislegt að frétta síðan síðast...náttúrulega búið að vera nóg að gera í skólanum og bara gaman að því.

Það voru svo hátíðisdagar hérna í Mílanó núna á fimmtudaginn og föstudaginn þannig að það er búið að vera löng helgi hjá okkur. Við, Ella, Sólrún, Herdís og Markús leigðum okkur því bíla og héldum af stað útí óvissuna á fimmtudaginn. Ella var þá búin að sjarma einhvern hótelstjórann uppúr skónum og fá þennan svaka díl fyrir okkur. Við keyrðum meðfram Gardavatninu og uppí fjöllin að bænum Pinzola þar sem hótelið okkar var, rétt hjá Madonna (einn af frægustu skíðastöðum á Ítalíu). Mættum þar beint í 4. rétta kvöldmat sem var innifalinn...ekki slæmt það! Í sykursjokki eftir efitrréttinn skelltum við okkur á skauta sem var náttúrulega svaka stuð! Löbbuðum svo um bæinn og skoðuðum jólaljósin og fórum snemma í rúmið. Daginn eftir keyrðum við svo upp til Madonna og kíktum á bæjarlífið það. Upphaflega ætluðum við nú að reyna að komast á bretti, en það er bara enginn snjór á allri Ítalíu né neitt hérna í kring,  það er búið að vera svo heitt. Það var samt sem áður mjög gaman að skoða bæinn og smakka á heita kakóinu þeirra. Þaðan keyrðum við svo í bæinn Trenta, kíktum á markað þar og fengum okkur að borða og svona. Fórum svo á jólamarkað í næsta bæ við Pinzola...þar var lúðrasveitin mætt á svæðið og spilaði jólalög og mikil stemming í kringum þetta. Fórum svo heim á hótel og fengum okkur eftirmiddagsblund fyrir matinn eins og gamla fólkið! Maturinn var nú ekki verri en fyrri daginn, en eftir hann óðum við vatnsflauminn (það rigndi alveg rosalega) á einhvern bar þarna í bænum og syntum heim seint og um síðir.
Á laugardaginn keyrðum við svo heim...með stuttri viðkomu í IKEA, maður verður náttúrulega að nota tækifærið þegar maður er með bíl. Það var nú frekar fyndið þegar við vorum að fara að fylla bílinn áður en við skiliðum honum, þá var einhver kall á bensínstöðinni sem hafði ruglast svona hrikalega og keypt bensín á bílinn sinn sem var dísel bíll. Þetta var sjálfsafgreiðsla og kallgreyið var búinn að borga með kortinu sínu og allt og hafði svo ekkert við þetta að gera. Hann stóð þarna alveg ráðalaus og var að reyna að selja okkur bensínið sitt, þar sem við vorum á dælunni á móti. Við vorum náttúrulega bara með kort og gátum ekkert borgað kallinum...hann fór þá að reyna að selja einhverjum öðrum þetta 42 evru virði af bensíni en ekkert gekk. Á meðan var Óli eitthvað að berjast við sjálfsalann sem vildi ekki taka kortið hans. Það endaði svo með því að kallinn bara gaf okkur bensínið!! Ekki slæmt það! Það besta var samt að annar gaur sem var þarna á vespu vildi svo endilega kaupa afganginn af bensíninu, þannig að við tókum peninginn hans og stungum af! :) græddum sem sagt 7 evrur á því að fylla bílinn!
Tókum því svo bara rólega í gærkvöldi en í kvöld verðum við með hina árlegu jólaglögg, þar sem boðið verður uppá ekta IKEA jólaglögg, eplapæ, piparkökur og fleira góðgæti. Það verður ekkert smá kósí og gott.
Svo er það bara skólinn í 1 og hálfa viku í viðbót, Reykjavík 20. des., Akureyri með Pésa mínum 22. des og laufabrauð...og svo eru bara jólin komin! :)
Hafiði það gott þangað til,
Baci a tutti

miðvikudagur

23. nóvember 2006 klukkan 02:06

jæja, Þá er enn ein helgin að ganga í garð...það er ekki nóg með að fimmtudagur sé litli föstudagur hérna, heldur er miðvikudagur líka litli fimmtudagur...og þar með er í raun bara einn virkur dagur í vikunni, sem sagt þriðjudagur af því að mánudagur telst eiginlega ekki með! ekki slæm stærðfræði það! :)
Enn er sorglega lítið að frétta hjá okkur...Óli er að verða svo helmassaður að ég hélt að hann væri að fá vökva inn á hnéð í gær, en þá var það bara lærvöðvinn á honum! Ég prófaði líka að labba í skólann í gær. Fékk eitthvað bjartsýniskast og hélt að það væri alveg rosalega stutt..tæki jafnvel styttri tíma en þessir 2 trammar sem ég tek venjulega og tekur 40 mín. en neinei...ég mætti 3 mínútum of seint í tíma, kófsveitt og sæt! efst á óskalistanum mínum þessa dagana er hjól...eða það sem væri ennþá betra, VESPA! :)
Ég er ekki skemmtileg á ítölsku. Allir krakkarnir í bekknum mínum halda örugglega að ég sé geðveikt feimin af því að það hefur komið í ljós að ég hef ekkert mikið að segja á ítölsku annað er það sem nauðsynlegt er. Verð að fara að gera eitthvað í þessu...annars er ég nebbla alveg fín sko! :)
Læt ykkur vita hvernig þetta fer alltsaman.


Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Óli & Ester

Nemar við IED (Istituto Europeo di Design) og ISAD (Istituto superiore di architettura & design) að læra innanhúss hönnun.

Þú nærð í okkur í Mílanó:
Heimilisfang: Via A. Sciesa 3
Póstnúmer: 20135
Gsm Óli: +(39) 334-161-9492
Gsm Ester: +(39) 334-161-9495
E-mail Óli: ojensson@gmail.com
E-mail Ester: esterbjoss@hotmail.com
Skype: ojensson