Blogg og hellingur af nýjum myndum! :)
22. febrúar 2008 klukkan 23:17
Æj ég veit ekki...fannst bara vera kominn tími til að blogga! :)
Það er náttúrulega ekki að spyrja að því að það hefur margt gerst síðan síðast...enda nokkrir mánuðirnir síðan. Ég ætla nú ekkert að fara að þreyta ykkur (takið eftir því að ég geri virkilega ráð fyrir að einhver kíki ennþá hingað) með því að rifja þetta allt saman upp, en til að þetta verði ekki alveg yfirþyrmandi ætla ég að punkta smá...allavega til að byrja með...ég er hrædd um að þetta verði staðreyndablogg þannig að ég smelli nokkrum myndum inn á milli til að deyja ekki úr leiðindum. Kannaski best að byrja á einni af okkur, ef þið skilduð vera búin að gleyma! ;)
Sumarið var náttúrulega frábært í alla staði. Helst stendur uppúr Tyrklandsferðin með stelpunum mínum sem var alveg yndisleg. Við lágum á vindsængum í sundlauginni allann tímann á milli þess sem við sötruðum kokteila og kíktum á djammið einu sinni eða tvisvar!
Þegar heim til Íslands var komið fór ég beint á KEA og Ólinn í veiðina. Svo var það bara vinnan og sundferðir með Dúnnu minni og krílunum. Í lok sumars vorum við svo með fjölskyldunni minni á Spáni í viku og enduðum í nokkurra daga heimsókn hjá Sif og Hlyni í Madrid, rosalega skemmtilegt allt saman.

Við komuna hingað tók svo bara skólinn við og hin venjulega rútína hérna. Lærdómur, partý, matarboð og skemtilegheit. Óvenju mikill gestagangur á haustdögum byrjaði á því að hann Eggert okkar kom í heimókn frá Belgíu þar sem hann var í skiptinámi og var hérna í nokkra góða daga í stanslausu partýi. Nokkrum vikum seinna kom svo Íris í heimsókn...þeir dagar eru gjarnan kallaðir verslunardagarnir miklu, enda lítið annað gert en að versla og drekka mojito! :)
Áður en maður vissi af voru svo bara jólin komin og við mætt á klakann! Alltaf jafn gott að koma heim í jólastemminguna og hitta alla aftur.
Janúar hvarf...aldrei hefur neinn mánuður hlaupið svona frá mér. Það voru annalok og verkefnaskil hjá mér í lok janúar, þannig að hann fór allur í lærdóm og gekk bara vel.
Febrúar byrjaði með því að Anna mín og Gyðan komu í heimsókn! Það var alveg frááábært að fá þær og við gerðum allt! Það var farið út að borða, verslað, drukkið, bakaðar bollur á bolludaginn, kelað í svefnsófanum og fleira og fleira. Frábærlega skemmtileg heimsókn.

Síðan í byrjun febrúar er ég svo búin að vera í stafsnámi. Er að vinna hérna á arkitektastúdíói sem einn af prófessorunum mínum rekur. Sossum ekki mikið um það að segja...bara alveg ágætt. En á meðan er Óli búinn að vera á fullu í skólanum, alltaf nóg að gera þar.
Svo fórum við í brettaferð helgina 9.-10. feb. með Sverri, Sigurrósu og Heklu, stelpunni þeirra og Niklas, Svía sem er með mér í bekk. Keyrðum til Madesimo, sem er hérna í tveggja tíma fjarlægð, á laugardagsmorgni og gistum á litlu hóteli í eina nótt. Það var alveg frábært veður allann tímann og ótrúlega skemmtilegt. Ég er reyndar ekkert að verða betri á brettinu, en það er alltaf gaman að komast aðeins uppí fjöllin í góðu veðri með skemmtilegu fólki! :)

Það hefur nú eitthvað gerst síðan þá, en ég er að hugsa um að hafa þetta ekki lengra í bili...ég á ekki einu sinni eftir að nenna að lesa þetta sjálf! Ætla að reyna að fara að vera duglegri að skrifa hérna inn og setja inn myndir og svona, þannig að ekki gefast alveg upp á okkur!
Ég er búin að setja inn fuuullt af nýjum myndum sem þið getið skoðað hérna til hliðar. Það eru myndir úr Tyrklandsferðinni , Heimsókn Önnu og Gyðu og Brettaferðinni til Madesimo .
Góðar stundir :)

Lilja Vilborg
hæ hæ :) er búin að vera að hugsa til gamla gengisins enda er ég alltaf að heyra lög sem minna mig á Akureyrarferðina alræmdu... hehe... good times :) Frábært að heyra hvað þið hafið það gott og njótið lífsins :) Áfram með fjörið! eða eitthvað aðeins svalara slogan :) Cheers :)
#1
23. febrúar 2008 klukkan 11:28
Guðrún Ragnars
Takk Ester mín að byrja að blogga aftur, það er svo gaman að lesa það sem þú skrifar og ekki síður að skoða myndirnar. Haltu þessu nú áfram. Kveðja frá öllum í Beykihlíðinni
#2
24. febrúar 2008 klukkan 22:35
hæ elskurnar mínar!!!
oooh hvað var gaman að kíkja á allar myndirnar.... og alveg sérstaklega gaman að kíkja á Tyrklandsmyndirnar... maður fær sko aldrei leið á því:):)
ég get ekki beðið eftir að koma til ykkar í apríl.... það verður geggjað.... við eigum sko eftir að hafa það gott og gaman saman;):)
óli minn.... það er sófinn í viku þegar ég kem..... ég verð auðvitað uppí hjá sterurinni minni;) hehe
miss you so much....:)
hafi það voða gott og knúsið hvort annað frá mér.... ;) ;)
heyrumst
Maggan;)

#3
25. febrúar 2008 klukkan 11:54
djöfull hefur verið hrikalega leiðinlegt hjá ykkur stelpunum maður.... ég fer nú að hugsa mig tvisvar um hvort ég eigi eitthvað að vera eyða tíma í að koma;) ;) ;)
öööössss þið hafið verið svakalegar.... þvílíkar skvísur;):) ruusalegt!
kisskiss!!

#4
25. febrúar 2008 klukkan 12:45
Gyða
Halló!
Nú er ég sko ánægð með þig Ester mín! :) Rosalega gaman að sjá myndirnar og rifja upp minningar úr Tyrklandsferðinni og hinni frábæru heimsókn til ykkar!!! MIg langar bara að koma aftur þegar ég skoða þetta :) Vona að þú haldir þessu góða blogggengi áfram.... var við það að missa vonina en trúði samt alltaf á það innst inni að þú myndir koma til hehe ;)
Hafiði það sem best þið skötuhjú,
kram og knús frá Odense

#5
25. febrúar 2008 klukkan 12:49
langaði bara að segja þér að ég er búin að lesa þessa bloggfærslu hjá þér.. get hins vegar ekkert sagt fyrr en ég er búin að jafna mig á sjokkinu að þú hafir virkilega bloggað....
#6
25. febrúar 2008 klukkan 21:21
Hanna dje
Hæ.
gaman að sja ykkur'
bæ
Hanna Dis
p.s Ester útafhverju ertu alltaf að senda mer klám á messenger?
múhahahah

#7
27. febrúar 2008 klukkan 12:20
Hæ, hæ.
Vá, hvað er gaman að sjá bloggfærslu hér!!!
Er sko búin að lesa og vonandi fæ ég að lesa annað blogg innan svona hálfs árs.... :)
Hafið það gott
Kv.
Sunna Brá.

#8
03. mars 2008 klukkan 15:11
Ok búin að jafna mig;)
Langaði bara að segja þér að ég verð á Akureyri í sumar og get ekki beðið eftir að hitta ykkur skísur allar aftur!! :)
Gleðilega páska;)

#9
19. mars 2008 klukkan 14:37
Hæ hæ, verð nú að viðurkenna að það er frekar langt síðan ég kíkti hér inn, en var að skoða myndir frá því að við hittumst í mílanó og ákvað í kjölfarið að kíkja hvað væri að frétta hjá ykkur. Greinilega altaf nóg að gera og gaman hjá ykkur, flottar myndir af ykkur, það væri nú gaman að koma aftur í heimsókn :) allt gott að frétta hjá okkur, finnst eins og það séu bara nokkrir mánuðir síðan við vorum hjá ykkur en það eru komin 2 ár og 2 börn það gengur ótrúlega vel, svo er ég alltaf öðru hvoru ( svona þegar ég er ekki á fæðingardeildinni ) að hanna og sauma töskur og lét einmitt linkinn inn á heimasíðuna hérna uppi ef ykkur langar að kíkja, svo erum við loksins búin að kaupa okkur hús á Djúpavogi sem við fáum afhent í byrjun sumars þannig að nú er bara um að gera fyrir ykkur að fara að plana partýferð á Djúpó, þið eruð alltaf velkomin.hafið það sem allra allra best, bestu kveðjur Gústa, Gulli,Vigdís og Örn Þór
#10
03. apríl 2008 klukkan 16:50
helga birna (milano)
hva er bloggað bara einusinni á ári hjá ykkur? Þú verður að bjalla í mig þegar þið komið út aftur! hafið það gott í sumar eða það sem er eftir af því og sjáumst vonandi í haust :)
#11
31. júlí 2008 klukkan 17:38
Hæ hæKvitta fyrir innlitið. Gaman að sjá það gengur vel og alltaf sama stuðið :)
Bið að heilsa ítölunum
Dils
#12
19. apríl 2009 klukkan 10:47